
Upplýsingar um Mercedes Benz klúbb Íslands

Hér finnur þú upplýsingar um tilurð félagsins, inngöngu í félagið og hverjir eru hagsmunir af því að vera í því.
Mercedes-Benz klúbbur Íslands ("The Mercedes-Benz Club of Iceland") er hluti af Mercedes Benz Car Clubs sem er alþjóðlegt klúbbasamband á vegum Daimler AG, framleiðanda Mercedes-Benz.
.jpg)
Stofnun félagsins var samvinnuverkefni fimm einstaklinga og Ræsis hf, fyrrum umboðsaðila Mercedes-Benz, fyrir hönd Daimler samsteypunnar.
Fyrir stofnun félagsins hafði farið fram forskráning félagsins á vegum Ræsis hf í sambandið, og fengist með því vilyrði fyrir því að Daimler viðurkenndi hið nýja félag. Slík viðurkenning er mikill heiður fyrir félög sem þetta enda gerist félagið með því hluti af alheimsneti klúbba á vegum Daimler.
Kosið var samkvæmt lögum félagsins um stjórnarmenn á aðalfundi þann 31. októberl 2011.
Í stjórn eru:
Gunnar Már Gunnarsson er áfram formaður MBKÍ
Garðar Lárusson var kosinn varaformaður MBKÍ
Hjalti Guðmundsson var kosinn gjaldkeri MBKÍ
Björgvin Björgvinsson er áfram ritari MBKÍ
Sveinn Þorsteinsson er áfram meðstjórnandi MBKÍ
Í varastjórn eru, Jón Birgir Valsson áfram í 1 ár og Reynir Ari Þórsson kosinn til 2ja ára.
.jpg)
Innganga í Mercedes-Benz klúbb Íslands
Félagsgjald á ári er 3000 kr. Sé hinsvegar gengið til liðs við félagið á tímabilinu frá 1. september til 1. desember skal greiða 4000 kr. til að öðlast aðild að félaginu í rúmt ár, en ekki bara til næstu áramóta sem á eftir koma. Þeir sem því greiða 3000 krónur á umræddu tímabili fá gíróðseðil örfáðum vikum síðar.jpg)
Til að ganga í félagið er fyrsta skrefið að leggja þessar 3000 eða 4000 krónur (sjá útskýringu hér ofar) inn á reikning félagsins sem er 1185-26-2710 kennitala 450304-2710. Áríðandi er að í tilvísun komi fram kennitala hins nýja félaga og ekkert annað. Við svo búið skal sendur tölvupóstur á með upplýsingum um nafn, kennitölu, heimili, póstnúmer og síma. Félagsskírteinið mun síðan verða sent frá höfuðstöðvum Daimler eins fljótt og auðið er, en félagsskírteini eru send þaðan einu sinni í mánuði til allra klúbba innan MBCCCI. Þeir sem eitthverra hluta vegna þurfa staðfestingu á félagsaðild áður en skírteinið er sent út til félaga er bent á að taka það fram í tölvupósti til félagsins.
.jpg)
Tekið skal fram að við sendum ekki gíróseðil og að enginn sem ekki hefur sent greiðslu verður skráður í félagi.
Einnig skal tekið fram af gefnu tilefni að það að skrá sig inn á spjallvef eða Facebook síðu félagsins jafngildir ekki félagsaðild.
Hvaða hagsmunir eru af því að vera félagi í Mercedes-Benz klúbbi Íslands?

