Velkominn á heimasíðu Rúnars Sigurjónssonar

Ég er búsettur í Reykjavík, fæddur á því herrans ári 1972 og ég er vélvirki að mennt. Ég rek eigið bílaverkstæði og bílaflutningafyrirtæki og hef um árabil verið mikill áhugamaður um gamla bíla og þá einkum Mercedes Benz fornbíla.

Þessi síða er yfirlit yfir þá fornbíla sem eru í minni eigu, en til að fræðast betur um einstök ökutæki getið þið smellt á mynd af viðkomandi bíl. Til að forðast allan misskilning er bifreiðunum er raðað í árgerðaröð en ekki eftir eigin vinsældavali.

Sá sem hélt því fram að konur væru frekar þjáðar af jánskoti en karlar hefur augljóslega ekki enn kynnst fornbílaáhugamanni, svo ef þú hefur ekkert gaman af bílum getur þú lokað þessari síðu strax. Við ykkur hina segi ég.....

....Góða skemmtun .

 

Mercedes Benz 220S Coupé árgerð 1957 (Gamli Coupeinn)

 

Mercedes-Benz 220SE Coupé árgerð 1963 (Yngri Coupeinn)

Mercedes-Benz 190D líklega 1964 árgerð (Ryðmaurinn)

Mercedes-Benz 300GD árgerð 1982 (Klaus Hergesheimer)

Mercedes-Benz 200 árgerð 1984. Umfjöllun vonandi síðar

Mercedes-Benz 500SE árgerð 1986. Umfjöllun kemur síðar.

 

Bílar sem ég hef áður átt

Já suma bíla er ég búinn að selja. Með því að smella á tengilinn hér að ofan má forvitnast aðeins um hvaða bíla ég hef eitt sinn átt